Segir samruna draga úr samkeppni 22. janúar 2005 00:01
Tvö af minnstu tryggingafélögum landsins hafa sameinast og eru nú að meirihluta komin í eigu VÍS, sem er eitt af stóru tryggingafélögunum. Formaður Neytendasamtakanna segir þetta draga úr samkeppni og hækka verðið til neytenda. Íslandstrygging og Vörður - vátryggingafélag náðu samkomulagi í vikunni um að sameinast. Í nóvember síðastliðnum keypti VÍS Vörð, sem var að mestu í eigu Baugs. Eftir sameininguna við Íslandstryggingu á VÍS 58% í hinu sameinaða félagi. VÍS er einn þriggja risa á tryggingamarkaði sem hefur sætt rannsókn samkeppnisyfirvalda vegna samráðs. Íslandstrygging og Vörður voru og eru hins vegar lítil tryggingafyrirtæki sem ætluðu sér að etja kappi við risana og efla samkeppni. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, er uggandi vegna yfirtöku VÍS á litlu félögunum. Hann segir að draga muni úr samkeppni og ef það dragi úr samkeppni á tryggingamarkaði, þar sem takmörkuð samkeppni hafi verið fyrir, verði þróunin eins og hún hafi alltaf verið, að verð hækki. Fyrir ári var Baugur í fararbroddi þeirra sem komu með fjármagn inn í Vörð og boðaði aukna samkeppni á tryggingamarkaði almenningi til hagsbóta. Þá sagði Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, í samtali við Ríkissjónvarpið: „Ég heiti þeim allavegana aukinni samkeppni," og í fréttum Stöðvar tvö sagði Jóhannes aðspurður hvort fyrirtækið myndi bjóða lægstu tryggingarnar á markaði: „Því get ég ekki lofað en ég get allavegana lofað því að tryggingar í landinu munu lækka." Jóhannes Gunnarsson segist ganga út frá því að margir hafi glaðst þegar nafni hans hafi látið ofangreind ummæli falla. Því miður virðist þau ekki ætla að rætast.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira