Ný lög auka hættu á stórbrunum 22. janúar 2005 00:01
Ný lög og reglugerðir um söfnun og förgun úrgangs hafa skapað aukna hættu á stórbrunum og geta leitt til hættu fyrir almenning. Þetta kemur fram í skýrslu Brunamálastofnunar vegna brunans í Hringrás fyrir tveimur mánuðum. Skýrslan vekur enn fremur athygli á því að eigendur fyrirtækja hér á landi gera sér ekki nægjanlega grein fyrir lagalegri ábyrgð sinni hvað brunavarnir varðar. Brunamálastofnun hefur nú lokið úttekt sinni vegna brunans hjá Hringrás í nóvember í fyrra. Þrátt fyrir að skýrsluhöfundur komist að þeirri niðurstöðu að lítil hætta sé á að svipaður eldsvoði geti átt sér stað hjá öðrum fyrirtækjum með sambærilegan rekstur þá er óhætt að segja að nokkrum viðvörunarskotum sé skotið á loft í skýrslunni. Í skýrslunni er vakin athygli á því að ný lög og reglugerðir um söfnun og förgun úrgangs hafi leitt til þess að fyrirtækjum sé nú greitt fyrir að safna ákveðnum vörutegundum og koma þeim í endurnýtingu. Þetta geti leitt til þess að miklu magni af brennanlegum úrgangi sé safnað saman. Það geti skapað hættu á stórbruna sem leiði til þess að almenningi sé stefnt í hættu eins og sýndi sig með brunanum í Hringrás. Þá segir í skýrslunni að eigendur Hringrásar hafi ekki gert sér grein fyrir lagalegri ábyrgð sinni hvað varðar brunavarnir og að margir eigendur og stjórnendur fyrirtækja hér á landi geri sér ekki grein fyrir ábyrgð sinni. Þessu telur skýrsluhöfundur mikilvægt að ráða bót á. Í skýrslunni er enn fremur vakin athygli á því að fjögur af þeim sex fyrirtækjum á landinu sem safna saman dekkjum í þéttbýli séu nálægt íbúðabyggð og að bruni í þessum fyrirtækjum geti skapað talsverða hættu fyrir almenning.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Sjá meira