Hótel opnað eftir tæpar tvær vikur 29. maí 2005 00:01
Radisson Sas 1919 í gamla Eimskipahúsinu verður opnað 10. júní næstkomandi með pompi og prakt. Andri Már Ingólfsson, eigandi hótelsins, segir að um glæsilegasta hótel Íslands sé að ræða og fékk fréttastofa Stöðvar 2 að kíkja inn, nú þegar verið er að leggja lokahönd á verkið. Húsið var byggt árið 1919 og er hótelið nefnt eftir byggingarárinu, en það var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, sem teiknaði það. Í meira en 80 ár var Eimskipafélag Íslands með höfuðstöðvar sínar í húsinu en það var um tíma með stærstu byggingum bæjarins. Upphaflega stóð til að hótelið yrði opnað þann 1. maí en Andri Már Ingólfsson, eigandi þess, segir að þar sem um fyrsta flokks hótel sé að ræða hafi verið ákveðið að fara sér hægar og gera hlutina vel. Á hótelinu verða 70 herbergi, þar af 16 svítur, og í anda þeirra Radisson-hótela sem eru úti í heimi. Gömlu Eimskipainnréttingarnar eru þó friðaðar og segir Andri Már þær vel geymdar á bak við nýju innréttingarnar og eflaust einhver ár í að þær sjáist aftur. Hótel hafa sprottið upp á undanförnum árum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Andri Már segist þó ekki hræddur við samkeppnina. Það sé alltaf fyrir hendi samkeppni og húns sé af hinu góða. Andri segir að þrátt fyrir að um mikið verk sé að ræða sé kostnaðurinn hóflegur og ekki hafi verið farið yfir þá upphæð sem upphaflega var lagt upp með. Andri vill þó ekki segja til um hver kostnaðurinn sé. Það skipti miklu máli að vera innan fjárhagsáætlana því það sé mun dýrara að breyta gömlu húsi en að byggja nýtt. Það hefur ekkert verið til sparað í þessu sögufræga húsi en þrátt fyrir samkeppni á hótelmarkaði segist Andri Már engar áhyggjur hafa, hótelið sé einstakt.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fleiri fréttir Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Sjá meira