Óttast sömu þróun og í fiskvinnslu 10. mars 2005 00:01
Formaður Samiðnar óttast svipaða þróun í iðngreinum og fiskvinnslu, það er að útlendingar verði í meirihluta þeirra sem starfa við greinarnar. Hann segir þróun í slíka átt þegar hafna. Talið er að að af þeim sem starfa sem iðnaðarmenn á höfuðborgarsvæðinu séu um 15 prósent útlendingar. Þeim fer sífellt fjölgandi. Á sama tíma hefur iðnnemum hér á landi fækkað og svo er komið að enginn sækist eftir námi í sumum greinum. Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, segir að í blikksmíði hafi erlendir starfsmenn og ófaglærðir íslenskir starfsmenn starfað hvað lengst og merkjanleg fækkun sé á iðnnemum í því fagi. Aðspurður hver skýringin sé segir Finnbjörn að fyrirtæki skuldbindi sig ekki til einhvers tíma til að vera með iðnnema og þau geti leyst sín vandamál með því að fá tímabundna starfsmenn að utan og þau velji það fremur en að taka iðnnema. Hjá Stjörnublikki í Kópavogi starfa t.d. aðallega pólskir blikksmiðir sem ráðnir eru í gegnum erlenda starfsmannaleigu. Að sögn sögn verkstjóra fyrirtækisins, Friðbjörns Steinssonar, fá þeir greidd laun samkvæmt kjarasamningi en ef hann hefði íslenska blikksmiði í vinnu fengju þeir á milli 250 til 300 þúsund krónur í mánaðarlaun. Friðbjörn segir ekkert því til fyrirstöðu að ráða íslenska blikksmiði eða taka nema á samning en þeir fáist einfaldlega ekki. Formaður Samtaka iðnaðarins segir hins vegar að áhugi sé fyrir hendi hjá mörgum Íslendingum en þeir komist einfaldlega ekki að. Hann óttast að sama þróun verði í öðrum iðngreinum og það gæti haft veruleg áhrif á íslenskan byggingariðnað. Það þýði fyrir almenning að vöruvöndun muni hraka.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira