Óttast að samlagi verði lokað 10. mars 2005 00:01
Margir Dalamenn óttast að Mjólkursamlaginu í Búðardal, stærsta vinnustað héraðsins, kunni að verða lokað í kjölfar sameiningar Mjólkursamsölunnar og Mjólkurbús Flóamanna. Sveitarstjóri Dalabyggðar telur þó ekki ástæðu til að óttast slíkt og segir heimamenn ætla að berjast fyrir því að öflugur matvælaiðnaður verði í Búðardal. Dalasýsla er það hérað landsins sem á hvað mest undir landbúnaði enda hefur þar hvorki byggst upp sjávarútvegur né iðnaður sem neinu nemur. Íbúar sýslunnar eru um 750 talsins og þar af býr þriðjungurinn, eða um 250 manns, í Búðardal, eina þéttbýliskjarna svæðisins. Stærsti einstaki vinnustaðurinn er Mjólkursamlagið en þar starfa um fimmtíu manns. Það heyrir undir Mjólkursamsöluna en í næstu viku skýrist hvort hún muni sameinast Mjólkurbúi flóamanna á Selfossi. Þótt forystumenn mjólkurfélaganna segi að ekki standi til að loka neinni starfstöð í kjölfar sameiningar eru íbúar í Búðardal ekki í rónni. Þeir óttast hið versta og segja að sporin hræði. Kristján Jóhannsson hefur unnið hjá fyrirtækinu frá upphafi, eða í 40 ár, lengst af sem mjólkurbílstjóri. Spurður hvort fólk óttist að dregið verði saman í starfseminni og jafnvel lokað segir Kristján að fólk viti ekkert um það en það eina sem það hafi heyrt sé að ekki verði breytingar næstu mánuði. Fyrirtækið hefur lengi þótt eitt af framsæknustu mjólkurbúum landsins og er þekkt fyrir fjölda nýjunga á markaðnum, eins og Feta-ostinn og LGG-drykkina. Hrísmjólk, Engjaþykkni og Drykkjarjógúrt eru einnig dæmi um þekktar vörur frá Búðardal en kannski er búið kunnast fyrir ostana og má þar nefna Höfðingjann, Brie-ostana og skólaostinn. Starfsmenn spyrja sig hvort þessu litla mjólkurbúi verði fórnað í nafni hagræðingar. Kristján segir að afurðarstöðvum í mjólkuriðnaði hafi verið fækkað eins og í fleiri greinum í landbúnaðinum. Það væri mjög alvarlegt fyrir byggðarlagið ef samlaginu yrði lokað. Á bænum Kvennabrekku í Miðdölum býr einn af stjórnarmönnum Mjólkursamlagsins, Guðmundur Pálmason, en þar rekur hann ásamt konu sinni, Gunnlaugu Arngrímsdóttur, blandað bú með um tuttugu mjólkandi kúm í fjósi og í fjárhúsunum við hliðina eru um 260 fjár. Hann segir að stjórn Mjólkursamlagsins mæli með sameiningu í þeirri trú að hún muni styrkja mjólkuriðnaðinn og óttast ekki um framtíð mjólkurstöðvarinnar í Búðardal. Það styrki stöðuna að mjólkurbúið hafi verið mjög vel rekið, þar sé úrvalshráefni og góður mjólkurbússtjóri og gott starfsfólk. Hann segir þó vissulega blendnar tilfinningar meðal bænda. Dalirnir standi og falli með landbúnaði og ekkert annað sé í boði þar. Mjólkursamlagið í Búðardal veltir um 1300 milljónum króna á ári, fjármunum sem skila sér út í hérað þar sem fólki hefur fækkað um þriðung á 30 árum. Haraldur L. Haraldsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, hefur þó ekki áhyggjur af framtíðinni. Hann segir mjólkurstöðina öfluga og í sveitarstjórninni sé unnið að því markvisst að gera Búðardal að öflugu matvælaframleiðsluhéraði. Hann vonist til þess að það takist bæði með öflugu sláturhúsi og mjólkurstöð. Dalamenn verði að taka þátt í slagnum. Ef aðalfundir Mjólkursamsölunnar og Mjólkurbús Flóamanna í næstu viku samþykkja sameiningu verður til mjólkurrisi með tvo þriðju af allri mjólkurframleiðslu landsins. Spurningin sem stjórnendur standa frammi fyrir í framhaldinu er hvort þörf verði á að starfrækja áfram fimm mjólkurbú á vegum félagsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira