Lýtaaðgerð fyrir þúsund árum 23. mars 2005 00:01
Íslenskum konum virðist hafa verið eins umhugað um útlitið fyrir þúsund árum og nú. Fyrsta tannviðgerðin sem vitað er um að gerð hafi verið hér á landi var útlitsbætandi aðgerð. Leiða má líkur að því að hún hafi verið sársaukafyllri en nokkuð það sem núlifandi Íslendingar upplifa í stólnum hjá tannlækninum. Beinasafn var grafið upp árið 1939 við Skeljastaði í Þjórsárdal og það hefur verið rannsakað sérstaklega til að gera útttekt á tönnum fornmanna. Merkilegasti tanngarðurinn er frá því fyrri árið 1100, af konu um fertugt. Önnur framtönnin skagaði fram og hefur þótt útlitslýti. Svend Richter, lektor við tannlæknadeild Háskóla Íslands, segist viss um það að jafnvel fyrir þúsund árum hafi konur hugsað um útlit sitt í Þjórsárdalnum svo að konan hafi gripið til þess ráðs að slípa framan af tönninni. Eins og sjáist á tönninn sé stór hluti af krónu hennar horfinn. Svend segir að þetta hafi væntanlega verið gert með einhvers konar brýni eða steini og það hafi verið sársaukafullt. Konan hefur haft fulla tilfinningu í tönninni og hún verið slípuð í áföngum vegna þess hversu kvalarfullt það var. Aðspurður hvort konan hafi gert þetta sjálf segir Svend að þetta hefði verið ógjörningur nema hún hafi gert þetta sjálf. Annars hefði þetta verið hrein pynting. Hvort útlitsbreytingin hafi skilað blessaðri konunni aukinni hamingju eða lífsfyllingu veit enginn en ljóst er að hún markaði tímamót í sögu íslenskra tannviðgerða. Svend segir að ekki sé vitað um tilvik sem þetta fyrr. Þetta sé væntanlega fyrsta útlitsbætandi aðgerð á Íslandi og kannski fyrsta tannviðgerðin. Svend segir að ástand tanna forfeðra okkar hafi verið nokkuð gott. Aðalvandamálið var slit vegna fæðunnar, þurrkaðs kjöts og fisks sem í voru rykagnir og jafnvel gosaska sem vann vel á tönnunum. Þá var skyrbjúgur landlægur og honum fylgdi blæðandi tannhold. Og svo má ímynda sér útlitið. Svend segir að tennurnar hafi nánast verið á kafi í tannsteini. Svo má minna á, ekki síst þar sem von er á miklu súkkulaðiáti næstu daga, að mikilvægt er að bursta tennur tvisvar á dag með flúortannkremi og að góð tannburstun tekur að minnsta kosti tvær mínútur. Þannig má einnig koma í veg fyrir tannsteinsmyndun.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira