Innlent

Reglur um kaupskip enn í skoðun

Nefnd sem skoðar tilhögun breytta reglna um kaupskip, svo fyrirtæki sjái hag í að skrá þau hér, hefur ekki lokið störfum. Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytis, segir störf nefndarinnar miða hægt en ákveðið. "Hópnum sem var falið að vinna áfram hefur verið að fara yfir málið og kanna verklag og er niðurstaða ekki fengin," segir Ragnhildur. Nefndin skoðar stofnun alþjóðlegrar skipaskrár hér á landi. Ekkert kaupskip í millilandaflutningum er hér skráð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×