Vaktaskipti í Westminster 3. maí 2005 00:01
Það er af sem áður var, er vegfarendur um fjölförnustu torg Lundúna gátu vart þverfótað fyrir kosningaáróðri sem sjálfboðaliðar flokkanna öttu að þeim er kosningar stóðu fyrir dyrum. Á endasprettinum fyrir þingkosningarnar sem fara fram í Bretlandi á morgun er fátt í bresku höfuðborginni sem minnir á að vaktaskipti í einu elsta og virtasta þingi heims séu að skella á. Það er helst að fulltrúar sprellframboða vindi sér að vegfarendum með boðskap á borð við: "Ís fyrir alla". Meira að segja höfuðstöðvar flokkanna í nágrenni þinghússins skera sig ekki að neinu leyti frá hverjum öðrum skrifstofubyggingum nema að því leyti að öryggisvarsla við inngangana er áberandi mikil. Það kom blaðamanni á óvart að prentaðar kosningastefnuskrár stóru flokkanna þriggja var aðeins hægt að fá í bókabúð gegn greiðslu. Og það á verði sem er vel yfir framleiðslukostnaði. Það er augljóst að það er liðin tíð að flokkarnir reyni að vinna kjósendur á sitt band með dreifingu prentaðs áróðurs. Að minnsta kosti í Lundúnum, þar sem svo til öll kjördæmi eru talin "örugg" – kosningabaráttan er meira áberandi í þeim um það bil 100 kjördæmum (af alls 646) þar sem kannanir benda til að mjótt sé á mununum. Í þessum kjördæmum beita flokkarnir markhópamiðuðum áróðursaðferðum svo sem persónulegum póstsendingum og blöðrugjöfum til skólabarna með orðsendingum til foreldranna. Að ógleymdum hefðbundnum baráttuaðferðum eins og kosningafundum með flokksleiðtogunum eða sjónvarpsauglýsingum með stuðningsyfirlýsingum vinsælla frægra persóna við þennan eða hinn flokkinn. Nú á dögum ýktra hryðjuverkavarna er reyndar ekki hlaupið að því fyrir kjósendur að mæta á kosningafundi þar sem leiðtogarnir tala. Svo að ræðurnar sem þeir halda eru oftast fluttar til þess að fjölmiðlar flytji fréttir af þeim – öðru vísi næðu þær ekki eyrum nema þeirra fáu útvöldu sem hleypt er inn á kosningafundina.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent „Vona að þú sofir vel“ Innlent Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Innlent Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Innlent Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu Innlent Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Innlent „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Innlent Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Innlent Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Innlent Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Innlent Fleiri fréttir Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Brand fær að ganga laus á meðan réttað er yfir honum Flokka Valkost fyrir Þýskaland sem öfgasamtök Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Drengnum sleppt en fleiri handteknir Munaði sex atkvæðum Waltz bolað úr embætti af Trump vegna Signal skilaboðanna Var svo „þreyttur á öllu“ að hann ákvað að aka inn í þvögu barna Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Getur frelsað El Salvador-fangann en vill það ekki Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Sænskur blaðamaður dæmdur fyrir að móðga Erdogan Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Segja 4.700 Kimdáta hafa fallið eða særst Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma Ungi morðinginn flúði nýverið af vistheimili Segir sveppaeitrunina hafa verið „hörmulegt óhapp“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Ungur maður handtekinn vegna morðanna í Uppsölum Fagnaði fyrstu hundrað dögunum í Hvíta húsinu Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Árásarmannsins enn leitað Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Sjá meira