Borgin kaupir lítið af Múlalundi 8. mars 2005 00:01
Framkvæmdastjóri Múlalundar er ósáttur við hversu lítið Reykjavíkurborg kaupir af fyrirtækinu sem stytti biðlista á vegum borgarinnar eftir verndaðri vinnu. Hann segir að auk bættra lífsgæða megi spara tugi milljóna króna í lægri lyfjakostnaði með því að þjálfa fólk til vinnu. Það var rífandi stemning í Múlalundi í dag þar sem var opið hús og margir góðir gestir komu, eins og forseti Íslands og félagsmálaráðherra. Þá sá framkvæmdastjóri Happdrættis SÍBS um lögin við vinnuna með því að taka óskalög á harmónikku en happdrættið er bakhjarl Múlalundar. Á Múlalundi eru framleidd bréfabindi og annar skristofubúnaður ásamt fleiru. Þar vinnur fólk sem er fatlað vegna slyss eða sjúkdóma og getur ekki farið á almennan vinnumarkað. Biðlisti er eftir störfum sem telur í dag um 40 manns. Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri Múlalundar, segir reynt að stytta biðlistana en það gangi hægt því um ákveðinn fjölda stöðugilda sé um að ræða. Helgi segir mörg stórfyrirtæki eiga viðskipti við Múlalund, en þó séu fyrirtæki sem eigi það alls ekki, sem honum finnst einkennilegt því Múlalundur sé samkeppnisfær, bæði í verði og gæðum. Múlalundur hefur verið að stytta biðlista í Reykjavík en Helgi segir Reykjavíkurborg samt ekki kaupa allt hjá þeim. Stöð 2 gerði stutta en óvísindalega rannsókn í ráðhúsinu í dag og þar kom í ljós að lítið sem ekkert var um bréfabindi frá Múlalundi, heldur innflutt. Helgi segir þó fræðsluskrifstofu og skóla kaupa framleiðslu Múlalundar. Þá segir hann vinnustaðinn í raun spara tugi milljóna fyrir samfélagið því lyfjanotkun minnki verulega hjá starfsmönnum við það að vinna, auk þess sem margir fari í nám eða á almennan vinnumarkað.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira