Hóta japanska ríkinu lögsókn 8. mars 2005 00:01 "
Þó að hjól réttvísinnar snúist hægt á Íslandi snúast þau enn hægar hér," segir Einar S. Einarsson, fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands, sem nú er staddur í Japan. Í gær var haldinn blaðamannafundur, þar sem meðal annars kom fram að ef japönsk stjórnvöld hafi ekki sleppt Fischer á föstudag verði þau lögsótt. John Bosnitch, formaður Frelsum Bobby Fischer nefndarinnar, sagði í viðtali við Fréttablaðið að nokkrar leiðir væru færar til lögsóknar. Farið verði fram á lögbann gegn því að Fischer verði haldið í innflytjendabúðunum. Með því verði Fischer frjáls ferða sinna innan Japan, þó hann geti ekki farið úr landi. Slíkt ferli gæti tekið tvær til þrjár vikur. Þá verður farið fram á það við dómstóla að Fischer verði sleppt. Ef þetta gengur ekki eftir verður höfðað mál í Bandaríkjunum, þar sem farið verður fram á að Fischer verði sleppt úr haldi, þar sem honum sé haldið að ósk Bandaríkjamanna. "Við höfum undir höndum bréf frá bandaríska heimavarnarráðuneytinu, þar sem farið er fram á að hann verði gripinn, hvar sem hann næst." Einar segir að dvölin hafi verið Fischer erfið. Tíminn sé lengi að líða við svona aðstæður. Einar og Sæmundur Pálsson muni heimsækja Fischer á morgun, á afmæli skákmeistarans. "Þó að farmiðinn og vegabréfið séu hans afmælisgjöf munum við færa honum eitthvert lesefni." Íslenska sendinefndin ætlaði að fara heim í gær, en nú er búist við hún haldi heim á fimmtudag. "Nema einhver hreyfing komist á þetta. Annars getur það hæglega tekið viku til tíu daga að fá hann lausan, ef gengist verður inn á að sleppa honum. Ef ekki verður gengið við þessu fara ný mál í gang sem geta tekið vikur eða mánuði. Með þessu móti er búið að jafna taflið, en skákin er ekki búin." Einar segir að sigurlíkur hafi þó aukist og það muni valda mikilli hneykslun víða ef Fischer verði ekki sleppt. Bosnitch segir að með því að fá vegabréfið afhent hafi nýir möguleikar opnast til að fá stuðning alþjóðasamfélagsins. Nú verði leitað til þekktra skák- og listamanna, auk annarra, til að hefja upp rödd sína gegn þessu mótlæti.Af blaðamannafundinum Garðar Sverrisson, John Bosnitch, Einar S. Einarsson og Miyoko Watai tóku til máls á blaðamannafundinum í gærEinar S. Einarsson
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira