Vísa tíu meintum öfgamönnum burt 11. ágúst 2005 00:01
Útlendingar í Bretlandi sem hvetja til hryðjuverka og dásama hryðjuverkamenn verða sendir til síns heima. Bresk yfirvöld starfa nú eftir þessari reglu en mannréttindasamtökum lýst ekki vel á hana. Breskir ráðamenn fóru ekki dult með þá fyrirætlan sína að vísa öfgamönnum sem hvettu til hryðjuverka úr landi. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á dögunum að hver sá sem kæmi til Bretlands og hvetti til sjálfsmorðsárása og lofaði sjálfsmorðsárásármenn ætti ekki að fá að koma inn í landið og þeim sem fyrir væru ætti að vísa úr landi. Í dag var þessum orðum fylgt eftir. Tíu meintir öfgamenn, útlendingar sem flestir komu sem flóttamenn til Bretlands, voru handteknir og verður á næstunni vísað til heimalanda sinna. Mánuðum saman hefur verið unnið að samkomulagi við þau ríki um að þau beiti mennina ekki harðræði þegar þeir verða sendir burt frá Bretlandi. Hazel Blears hjá breska innanríkisráðuneytinu segir að samningar hafi náðst við Jórdaníu í vikunni og þá standi yfir viðræður við önnur lönd til að tryggja það að Bretar geti enn staðið við alþjóðlegar skyldur sínar en jafnframt vísað öfgamönnum sem ógna öryggi Bretlands úr landi. Ekki er vitað nákvæmlega hverjir voru handteknir en talið er að jórdanski klerkurinn Abu Qatada, sem starfað hefur á Bretlandi og hefur verið undir lögreglueftirliti, sé þeirra á meðal. Spænskur rannsóknardómari heldur því fram að hann hafi verið andlegur leiðtogi hryðjuverkamannanna sem gerðu árásirnar 11. september 2001 og breski yfirvöld segja hann hættulegan. Talsmenn mannréttindasamtaka hafa áhyggjur af þessari þróun og segja samkomulagið við heimalöndin einskis virði. Harðlínuklerkurinn Omar Bakri var svo handtekinn í Líbanon í dag að beiðni breskra yfirvalda. Hann yfirgaf Bretland skömmu eftir hryðjuverkin í Lundúnum og er sakaður um landráð. Bakri segist ekkert hafa gert til að ýta undir hryðjuverk en innra með sér elski hann íslam og hati allt sem ekki tengist trúnni. Þetta sé hluti af trú hans „Enginn getur sagt við mig: Omar, ekki ráðast á djöfulinn því sumir dýrka hann,“ segir Bakri.
Erlent Fréttir Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira