Tíu þúsund án heimilislæknis 9. mars 2005 00:01
Um tíu þúsund manns eru án heimilislæknis á höfuðborgarsvæðinu, þar af 6350 Hafnfirðingar. Til stendur að opna tvær heilsugæslustöðvar í ár, aðra í Reykjavík en hina í Hafnarfirði. Að sögn Kristínar Pálsdóttur, hjúkrunarforstjóra á Heilsugæslustöðinni Sólvangi í Hafnarfirði, er talið eðlilegt að um 1500 íbúar séu skráðir á hvern heimilislækni en læknarnir í Hafnarfirði séu margir með mun fleiri á skrá. Ef farið væri eftir þessu viðmiði væru 9300 manns án heimilislæknis en opinbera talan er 6350. Þeir sem ekki eru með skráðan heimilislækni geta farið á Læknavaktina eða mætt utan venjulegs afgreiðslutíma hjá heilsugæslustöðinni en þá kostar heimsóknin 1700 krónur en heimsókn til heimilislæknis kostar 750 krónur. Ný heilsugæslustöð verður opnuð í Hafnarfirði í sumar og þá standa vonir til að fjórir heimilislæknar taki til starfa og þá ættu flestir þeirra sem nú eru án heimilislæknis að komast á skrá. Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, segir að samkvæmt úttekt sem gerð hafi verið í nóvember séu á milli þrjú og fjögur þúsund manns án heimilislæknis í Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarnarnesi en það segi þó ekki alla söguna um þörfina á fjölgun lækna því oft séu mun fleiri en 1500 íbúar á skrá hjá læknunum. Ný heilsugæslustöð verður opnuð í Voga- og Heimahverfi í haust og mun hún vonandi laga ástandið nokkuð.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira