Segja Stöð 2 hafa rænt Fischer 25. mars 2005 00:01
Framganga Páls Magnússonar fréttastjóra Stöðvar 2 við komu Bobby Fischers og unnustu hans Miyoko Watai til Reykjavíkurflugvallar í fyrrakvöld er harðlega gagnrýnd í yfirlýsingu frá Einari S. Einarssyni, sem er í stuðningsnefnd Fischers. Í yfirlýsingunni segir að eftir að Fischer hafi verið kominn í mótökubílinn hafi Stöðvar 2 menn nánast rænt Fischer um stundarsakir en komið með hann aftur á vettvang þegar allar sjónvarpsstöðvar hefðu verið búnar að pakka saman og fara. "Það hlítur að vera algjört einsdæmi að fréttamiðill taki atburðarrásina í eigin hendur af skipuleggjendum og stýri framvindu atburða til að geta setið einir að hitunni," segir í yfirlýsingunni. Til stóð af hálfu stuðningnefndar að heilsa Fischer og veita honum blóm og ríkisfangsbréf við þetta tækifæri. Ekkert varð úr því þegar Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn kom úr einkaþotunni með þau skilaboð að Fischer talaði ekki við neinn vegna mikillar þreytu. Í yfirlýsingu Einars segir að Geir Jón hafi gert þetta samkvæmt fyrirmælum Páls. Spurður segir Geir Jón það hafa verið ósk Fischers sjálfs og allra sem í þotunni voru að hann talaði ekki við fjölmiðlamenn við þetta tækifæri. Á blaðamannafundi á Hótel Loftleiðum staðfesti Bobby að það hefði verið hans ákvörðun og allra hlutaðeigenda að hann talaði hvorki við fjölmiðlamenn né stuðningsnefndina við komu sína þar sem hann hafi verið dauðþreyttur. Heimildarmaður Fréttablaðsins sem er einn af stuðningsnefndarmönnum sagði að Fischer hefði ekki verið svo þreyttur þegar þeir loks hittu hann á Hótel Loftleiðum. Honum þykir það undrun sæta að ef hlífa átti Fischer við amstur vegna þreytu að menn skyldu þá rúnta með hann uns fjölmiðlar væru farnir svo hann gæti farið aftur á vettvang í viðtal hjá Stöð 2. Hann sagði ennfremur að stuðningsnefndin væri fyrst og fremst ánægð með að Fischer væri kominn en harmaði hve lítil skil sumir fjölmiðlar gátu gert þessum viðburði.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira