Erlent

Flóð í Mexíkó

Miklar rigningar í Mexíkó hafa valdið flóðum í norðurhluta landsins en þar rignir sjaldan. Flóð hafa skemmt byggingar og vegi og fjöldi manna er án rafmagns. Í borginni Cocalco var rigningin svo mikil að þök fjölda húsa gáfu sig undan þunganum. Ár hafa víða flætt yfir bakka sína og vegir eru ófærir og hafa fjölmargir þurft að skilja við bíla þar sem þeir sitja fastir í vatninu. Veðurstofur spá áframhaldandi úrkomu á þessu svæði fram yfir helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×