Sögufrægur glæpamaður skotinn 19. október 2004 00:01
Indverskur glæpamaður sem sakaður er um að hafa myrt meira en 130 manns á nokkurra áratuga glæpaferli sínum var skotinn til bana í skotbardaga við lögreglu í fyrri nótt. Þar með lauk nærri fjörutíu ára glæpaferli hans sem varð kveikjan að gerð kvikmyndar og tilefni margra samsæriskenninga. Hinn sextugi Koose Muniswamy Veerappan fékkst aðallega við smygl á fílabeini og sjaldgæfum sandelviði. Hann átti í stöðugum útistöðum við lögreglu á þessu tímabili og var stærstur hluti þeirra á annað hundrað einstaklinga sem hann myrti lögreglumenn. Hann er einnig sagður hafa hengt alla þá sem hann grunaði um að njósna um sig fyrir lögreglu. Veerappan varð frægur fyrir glæpi sína og lán sitt við að sleppa úr greipum lögreglunnar. Frægð hans var sögð jafnast á við frægð helstu kvikmyndastjarna Indlands og það varð ekki til að draga úr frægð hans þegar hann rændi einum frægasta leikara landsins. Lán hans við að sleppa úr höndum lögreglu virtist, þar til í fyrri nótt, engan enda ætla að taka og hallast því margir að því að hann hafi notið verndar stjórnvalda eða stjórnenda lögreglunnar. Engin staðfesting hefur þó fengist á því.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira