Halda upp á hertöku Gíbraltar 3. ágúst 2004 00:01
Bretar halda uppá það í dag að 300 ár eru liðin frá því að þeir hertóku Gíbraltarklettinn. Spánverjum er ekki skemmt, en Bretar segja að þetta komi þeim ekki við. Hátíðin er haldin til þess að minnast þess að breski flotinn hertók Gíbraltar árið 1704. Árið 1713, afsöluðu Spánverjar sér klettinum í hendur Breta, í Útrecht sáttmálanum, en hafa verið að reyna að endurheimta hann, æ síðan. Það er kannski ekki svo skrýtið því kletturinn er syðsti oddi Spánar og þeim gremst að hafa þar breska nýlendu, þótt örsmá sé. Gíbraltar nýlendan er ekki nema sex og hálfur ferkílómetri að stærð. Ástæðan fyrir því að Bretar hafa haldið svona fast í klettinn er hernaðarlega mikilvæg lega Gíbraltar, því siglingaleiðin inn á Miðjarðarhaf liggur um hið örmjóa Gíbraltarsund. Til þess að bæta sér upp hið örsmáa landflæmi hafa Bretar, í gegnum aldirnar grafið 54 kílómetra löng göng þvers og kruss um klettinn, á mörgum hæðum. Þar eru meðal annars neðanjarðar sjúkrahús, eldhús, og raforkustöðvar sem geta þjónað og hýst þúsundir manna. Breski herinn notar þessi göng enn þann dag í dag, enda hefur hernaðarlegt mikilvægi Gíbraltar síst minnkað.
Erlent Fréttir Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira