Lífið

Jerry Goldsmith látinn

Óskarsverðlaunahafinn og tónskáldið Jerry Goldsmith er látinn, 75 ára að aldri. Goldsmith var afar virtur í Hollywood og samdi kvikmyndatónlist við fjölmargar stórmyndir. Á meðal þeirra frægustu eru Planet of the Apes, L.A. Confidential, Chinatown, Mulan og The Omen sem hann vann Óskarinn fyrir. Hann samdi einnig tónlistina við sjónvarpsþættina Star Trek. Goldsmith var alls tilnefndur til sautján Óskarsverðlauna á farsælum ferli sínum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.