Eiríkur rauði og Leifur Eiríks 23. júlí 2004 00:01
Kabarettinn Cuckoos hefur verið að gera það gott á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík að undanförnu en þar stíga á stokk margir af efnilegustu skemmtikröftum þjóðarinnar. "Ég stofnaði nýlega fyrirtæki með tveimur vinum mínum og við erum nú farnir á fullt skrið með að framleiða skemmtanir og vinnum einnig eins og umboðsskrifstofa fyrir skemmtanahöld," segir leikarinn Erlendur Eiríksson, sem margir þekkja úr uppsetningu Vesturportsins á Rómeó og Júlíu, en hið nýstofnaða fyrirtæki hans heitir Mid Atlantic entertainment and management. Kabarettinn er jómfrúarverkefni fyrirtækisins og jafnframt fyrsta leikstjórnarverkefni Erlends. "Við stílum sýninguna inn á ferðafólk og miðað við aðsóknina virðist hafa vantað eitthvað annað að gera fyrir útlendinga í Reykjavík en að fara í sund. Íslendingar hafa þó líka komið mikið til að horfa að undanförnu og það er gaman að finna hvað þetta leggst vel í fólk," segir Erlendur en kabarettsýningin er blanda af sólólögum, syrpum, göldrum og uppistandi. "Við byggjum sýninguna upp á óvæntri atburðarrás og þetta er svolítið eins og hjá gauknum sem skýst út úr klukkunni á klukkutíma fresti með söng og sprelli," segir Erlendur. "Hópurinn hefur líka skapað í sameiningu fjöldann allan af skrautlegum karakterum sem keppast við að koma fram," en meðal þeirra karaktera sem þvælast inn í kabarettinn er allt frá stefnumótaleiðbeinanda til Eiríks rauða og Leifs Eiríkssonar sem taka saman nútíma þríundarsöng.
Menning Mest lesið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira