Árangur í hryðjuverkastríðinu? 11. september 2004 00:01
Það er umdeilt hvort árangur hafi náðst í stríðinu sem hófst í kjölfar árásanna á Bandaríkin fyrir þremur árum. Eitt er þó víst: al-Kaída samtökin eru enn starfandi og Osama bin Laden gengur enn laus. Hver er árangur hryðjuverkastríðsins? Svarið virðist að öllu leyti fara eftir því hver verður fyrir svörum. Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir á flokksþingi repúblikana fyrir skömmu að búið væri að handsama eða drepa um þrjá fjórðu af helstu leiðtogum al-Kaída. Osama bin Laden gengur þó enn laus og svo virðist sem al-Kaída eða tengd samtök skorti ekki nýliða. Stríðið í Írak hefur að einhverju leyti séð fyrir því að menn fylkjast nú um boðskap og hugmyndafræði al-Kaída og vilja vinna Bandaríkjunum og Vesturlöndum sem mest tjón. Ein af umdeildari afleiðingum hryðjuverkastríðsins er einmitt að óvinurinn er orðinn dreifðari og illviðráðanlegri. Al-Kaída samtökin sjálf hafa umbreyst í kjölfar innrásar Bandaríkjanna í Afganistan. Leiðtogar samtakanna tvístruðust á flótta og efast er um að þeir hafi bolmagn til að standa að meiriháttar hryðjuverkum í dag. Það er hins vegar kaldhæðnisleg staðreynd að al-Kaída menn hafa síðustu misseri alls ekki þurft að standa að hryðjuverkum sjálfir, svo margir aðrir eru um hituna. Hryðjuverkin í Madríd eða í Jakarta í Indónesíu voru ekki fjarstýrð eða skipulögð beint af al-Kaída samtökunum. Þetta voru menn sem fylgdu sömu hugmyndafræði og svipaða sögu má segja um marga þá hryðjuverkamenn sem berjast í Tsjetsjeníu. Forsvarsmenn al-Kaída hafa því breyst úr beinum gerendum í hugmyndafræðilega forystumenn sem veita öðrum innblástur. Það má því segja að þó árangur stríðsins sé umdeildur er óumdeilt að enginn sigur er í höfn og margir hafa tapað.
Erlent Fréttir Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Sjá meira