Hóta blóðbaði í Evrópu 29. júlí 2004 00:01
Samtök sem sögð eru tengjast Al-Qaida hafa hótað að standa fyrir blóðbaði í Evrópu á næstunni. Í yfirlýsingu samtakanna, sem birtist á Netinu í dag eru Evrópuríki fordæmd fyrir að hafa ekki dregið herlið sín heim frá Írak og Afghanistan. Osama Bin Laden gerði Evrópuríkjum tilboð um frið þann 15. apríl síðastliðinn gegn því að evrópsk herlið yrðu flutt heim frá Írak og Afghanistan innan þriggja mánaða. Þessir þrír mánuðir eru nú liðnir og í yfirlýsingu sem birtist á Netinu í dag undir nafni Abu Hafs al-Masri herdeildanna, sem lýstu yfir ábyrgð á sprengjutilræðunum í Madrid í vetur, er blóðugu stríði lýst á hendur Evrópubúum og sagt að árásum muni ekki linna fyrr en ríki Evrópu sjái að sér og dragi herlið sín heim. Evrópskum borgum verði eytt og byrjað verði á Ítalíu og Silvio Berlusconi, sem samtökin sendu einnig hótun í síðustu viku. Ýmsir hryðjuverkasérfræðingar hafa lýst því yfir að ekki beri að taka hótanir frá Abu Hafs al-Masri herdeildunum alvarlega og að þær tengist ekki samtökum Al-Qaida nema að mjög takmörkuðu leyti. Hvað sem hótunum líður hafa samtökin áður lýst yfir ábyrgð á atvikum sem þau hafa ekki tengst, svo sem víðtæku rafmagnsleysi í Bandaríkjunum og Bretlandi í fyrra.
Erlent Fréttir Mest lesið Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Innlent Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Innlent Féll í hálku í sundi og fær bætur Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Innlent Fleiri fréttir Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Tugir drepnir á meðan þau biðu eftir matarskammti Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Færeyingar vilja fullveldi Trump fundar með þjóðaröryggisráði Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Ætlaði að myrða tvo þingmenn til viðbótar Sjá meira