Gölluð flugeldategund innkölluð 31. desember 2004 00:01
Landsbjörg og lögreglan hafa innkallað eina tegund flugelda vegna galla. Mikil sala hefur verið á skoteldum en lögreglan biður forráðamenn barna og unglinga að gæta vel að því að þeir séu ekki að nota flugeldana á annan hátt en ætlast er til. Tvö alvarleg slys urðu í gær þegar skoteldar voru teknir í sundur. Þeir áköfustu byrjuðu að skjóta upp flugeldum strax á milli jóla og nýárs en í kvöld ætti hámark að nást. Nokkur örtröð var enda á flugeldsölustöðum í morgun. Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur innkallað eina tegund flugelda þar sem hún reyndist ekki eins og til stóð. Flugeldurinn kallast „Hnífur“ og springur mjög fljótlega eftir að honum er skotið á loft og því hættulega nálægt fólki. Landsbjörg hefur gert ráðstafanir í því sambandi og innkallað þá gölluðu flugelda sem sendir hafa verið í sölu víða um land. Landsbjörg leggur áherslu á að þeir sem hafi keypt þessa flugelda skili þeim á næsta sölustað og fái annað hvort endurgreitt eða inneign fyrir öðrum flugeldum.Búið er að skila talsverðu inn af þessum flugeldum en að sögn Óskars Bjartmarz, varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík, vantar þó nokkuð upp á ennþá. Þrátt fyrir að aðalskottíminn sé ekki fyrr en í kvöld hafa þegar orðið slys vegna þeirra. Tveir strákar, einn í Reykjavík og hinn í Kópavogi, slösuðust í andliti eftir að þeir höfðu tekið skotköku í sundur. Sumir koma langt að til að sækja sína flugelda því Skagamenn voru í KR-heimilinu í morgun að kaupa sína flugelda þar, en þeir hafa haft þennan háttinn á í áratug. Jónas Kristinsson hjá KR-flugeldum segir daginn í yfirleitt skipta sköpum í flugeldasölunni. Þrátt fyrir vonda spá er Jónas sannfærður um að vel verði hægt að skjóta eldum á loft í kvöld, enda hafi hann aldrei upplifað þau áramót þar sem hann hafi þurft að sitja inni vegna veðurs í kringum miðnætti. Hann segir alltaf vera logn þá.
Fréttir Innlent Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira