Innlent

Morgunkornið lækkar

Bandarískt morgunkorn sem keypt er til landsins fyrir dollara hefur lækkað í verði um 16% í sumum tilvikum. Könnun neytendasamtakanna sýnir að allar verslanir hafa lækkað verð á morgunkorni sé það borið saman við verð í byrjun ársins. Dollarinn stendur lágt um þessar mundir og þessar upplýsingar benda til þess að íslenskir neytendur njóti þess. Neytendasamtökin gerðu athugasemd við það í febrúar á þessu ári að verðið á morgunkorni átta mánuði hafði ekki endurspeglað gengisþróunina. Nú er sagan önnur. Könnun sem gerð var í fyrradag leiddi í ljós að í Hagkaupum, Bónus og Nóatúni hafði verðið lækkað um sextán prósent að meðaltali. Þessar verslanir höfðu hins vegar allar hækkað verðið á tímabilinu júní 2003 til febrúar 2004. Lækkunin er því minni ef skoðað er átján mánaða tímabil. Minnst lækkun varð í verlsunum 10-11 (3% að meðaltali), Spar (5% að meðaltali) 11-11 (5% að meðallagi) og Europris (sex prósent að meðaltali), en geta verður þess að þessar verslanir höfðu allar lækkað verð á morgunkorni á tímabilinu júní 2003 til febrúar 2004 fyrir utan Eurospris, sem stóð í stað. Sú verslun sem mest hefur lækkað verðið á morgunkorni frá því í júní 2003 er hins vegar Fjarðarkaup í Hafnarfirði eða um 15%. Neytendasamtökin telja allar forsendur fyrir þessum lækkunum en að erfitt sé að meta hvort verslanir gætu lækkað verð á þessum vörum enn meira. Dollarinn var hæstur í nóvember 2001 eða um 110 krónur en er í dag skráður í 61 krónu. hann hefur því lækkað um 45 prósent. Telja neytendasamtökin sjálfsagt að þessi lækkun skili sér út í verðlagið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×