Hópur foreldra mótmælir 29. desember 2004 00:01
Dagvistargjöld einstæðrar móður í Reykjanesbæ með þrjú börn hækka um 18 þúsund krónur á mánuði með hækkun leikskólagjalda, frístundaskólagjalds og breytingum á niðurgreiðslum vegna vistunar hjá dagmæðrum. Hópur foreldra og dagmæðra, um fimmtíu manns, mætti á skrifstofur Árna Sigfússonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, í morgun og mótmæltu fyrirhugaðri breytingu á niðurgreiðslum vegna dagvistunar hjá dagmæðrum. Samkvæmt samþykktum Bæjarstjórnar Reykjanesbæjar fyrir árið 2005 falla sjálfvirkar greiðslur til foreldra vegna dagvistar barna í heimahúsum niður. Í staðinn geta foreldrar sótt um niðurgreiðslu til Fjölskyldu- og félagsþjónustunnar á grundvelli tekna. Niðurgreiðslur til hinna tekjulægstu hækka hins vegar um 45% úr 11 þúsund krónum í 16 þúsund krónur á mánuði. Foreldrar með 100-150 þúsund krónur á mánuði fá 18% hækkun á niðurgreiðslum, þ.e. 13 þúsund krónur á mánuði í stað 11 þúsund króna áður og foreldrar með tekjur undir 200 þúsund krónum á mánuði fá sömu niðurgreiðslu og áður þ.e. 11 þúsund kr. á mánuði. Foreldrar með yfir 200 þúsund króna mánaðarlaun njóta ekki niðurgreiðslu vegna dagvistar í heimahúsum. Hér er um að ræða sameiginlegar tekjur fólks og ljóst að afar fá hjón eru með tekjur undir tvö hundruð þúsund krónum. Rannveig Erla Guðlaugsdóttir, þriggja barna einstæð móðir sem mætti á skrifstofu Árna Sigfússonar bæjarstjóra í morgun, segir þessar breytingar kosta sig átján þúsund krónur á mánuði. Hún er með sjö ára barn sem sækir frístundaskóla eftir að grunnskóla lýkur, gjald fyrir hann hækkar úr 7900 krónum í 8500. Hún er með fjögurra ára barn á leikskóla og tveggja ára barn hjá dagmömmu. Hún muni nú greiða 78 þúsund krónur vegna vistunnar barna sinna í stað 60 þúsund króna áður. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, sagði í samtali við fréttastofu að ekki væri sanngjarnt að setja frístundaskólann inn í þetta dæmi. Hann væri sá ódýrasti sinnar tegundar á landinu. Þá kæmu þessar breytingar þeim tekjulægstu afar vel.
Fréttir Innlent Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Sjá meira