Jarðir falli í verði vegna smits 13. desember 2004 00:01
Dæmi eru um að jarðaeigendur óttist að jarðir þeirra kunni að falla í verði, ef staðfest er að hræ af militsbrandssýktum dýrum hafi verið urðuð þar. Þá er það nokkuð samdóma álit kunnugra í þessum viðskiptum að framvegis verði að taka sérstaklega fram við sölu á bújörðum ef hræ af miltisbrandssýktum skepnum hafa verið urðuð á jörðinni. Annars megi líkja því við leynda galla að selja jörð, þar sem vitað er að svona háttar til, án þess að geta þess sérstaklega. Nú er vitað um hátt í níutíu jarðir, einkum á Suður- og Vesturlandi, þar sem hræ af sýktum skepnum hafa verið urðuð. Þar af hefur yfirdýralækni verið tilkynnt um hátt í þrjátíu urðunarstaði eftir að miltisbrandsmálið kom upp á Vatnsleysuströnd í síðustu viku. Magnús Leópoldsson fasteignasali, sem hefur áratuga reynslu af viðskiptum með bújarðir, segist ekki hafa skoðað þessa hlið málsins sérstaklega en ef líta megi á þetta sem galla á jörðum þá hafi allir gallar áhrif til verðlækkunar, og þessir væntanlega eins og aðrir. Það hafi til dæmis áhrif á jarðaverð ef þær eru á svæðum þar sem meiri líkur eru á náttúruhamförum en á öðrum svæðum. Miltisbrandsmálið sé hins vegar svo nýtt að erfitt sé að meta áhrifin af því strax. Fréttastofunni er kunnugt um afar mismunandi sjónarmið í þesu máli. Sumir hafi jafnvel álasað nágrönnum sínum fyrir að hafa tilkynnt um miltisbrandsdys í landi þeirra, af ótta við að næsta jörð geti fallið í verði, aðrir telja heppilegast að upplýsa og kortleggja dysjunarstaðina sem fyrst og best, og enn aðrir telja hyggilegast að þegja yfir vitneskju um slíkt í eigin landi og sjá hverju fram vindur.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira