Opna á innanlandsflug í Keflavík 26. nóvember 2004 00:01
Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skýrt frá því að Íslendingar hafi boðist til þess á fundi hans og Colins Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að taka að sér auknar byrðar í rekstri Keflavíkurflugvallar. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, greip þennan bolta á lofti í umræðum um störf þingsins á fimmtudag og sagði að nú hefðu skapast nýjar aðstæður og réttast væri að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur.Eftir því sem næst verður komist er þegar gert ráð fyrir innanlandsflugi í skipulagi Keflavíkurflugvallar. Leyfi til reksturs innanlandsflugvallar í Reykjavík rennur út árið 2016 en framtíð flugvallarins var ákveðin í umdeildri atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa í febrúar 2002. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beitti sér sem borgarstjóri fyrir atkvæðagreiðslunni. Hún segir nú ,að fari svo að Íslendingar taki að sér stóran hluta kostnaðar við rekstur Keflavíkurflugvallar hafi skapast nýjar aðstæður: "Já mér finnst rétt að skoða málið upp á nýtt við þær aðstæður. Við getum tæplega rekið tvo flugvelli. Allavega finnst mér tilefni til að líta á málið aftur áður en lagt er í byggingu nýrrar flugstöðvar fyrir innanlandsflugið í Reykjavík." Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir enga ástæðu til að breyta um kúrs: "Ég tel að þetta breyti ekki málinu. Innanlandsfluginu er best fyrir komið í Reykjavík. Ef við þurfum að taka á okkur miklar skuldbindingar við rekstur Keflavíkurflugvallar eru hins vegar allt aðrar forsendur. Við verðum þá hugsanlega að stokka spilin upp að einhverju leyti." Sturla segir að eins og staðan sé nú sé flugvöllurinn rekinn á forsendum Varnarsamningsins. ""Þetta er ný mynd sem þarna myndi skapast. Aðalatriðið er það að við munum meta stöðuna þegar niðurstaðan liggur fyrir."
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira