Vilja flytja bandaríska sendiráðið 26. nóvember 2004 00:01
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, segir það koma til greina að borgaryfirvöld komi að því að bandaríska sendiráðið verði flutt annað. "Ég tek undir það að staðsetning þess er ekki góð, meðal annars af öryggisástæðum, og borgaryfirvöld gætu komið að því í samvinnu við utanríkisráðuneytið að það yrði flutt," segir hann. Bandaríska sendiráðið við Laufásveg hefur með leyfi borgaryfirvalda komið fyrir steyptum stöplum á bílastæðum fyrir framan húsið svo ekki sé hægt að leggja bílum þar. Þetta er gert í öryggisskyni. Íbúar í nágrenni við sendiráðið eru æfir yfir þeirri röskun sem þessar og aðrar ráðstafanir hafa haft í för með sér. Erlingur Gíslason, sem býr gegnt sendiráðinu, segir að ef borgaryfirvöld telji slíka hættu vera á ferð að það réttlæti auknar varnir við sendiráðið væri nær að gera öryggisráðstafanir gagnvart öðrum íbúum í götunni, sem séu berskjaldaðir. Fyrir hálfum öðrum mánuði funduðu íbúar við Laufásveg með fulltrúum Gatnamálastofu og fóru meðal annars fram á það að sendiráðið yrði hreinlega flutt úr götunni. Árni Þór, sem er formaður samgöngunefndar, segir að nefndin hafi samþykkt ósk sendiráðsins þrátt fyrir mótmæli íbúanna þar sem engin "haldbær rök" hafi komið fram af þeirra hálfu í þessu einstaka máli. Pía Hanson, upplýsingafulltrúi bandaríska sendiráðsins, segir að starfsmenn þess kappkosti við að eiga góð samskipti við nágranna sína. Hún viðurkennir þó að sambúðin hafi ekki alltaf verið á besta máta. Pía segir að starfsmenn sendiráðsins hafi í sjálfu sér ekkert á móti því að sendiráðið verði flutt annað, en frumkvæðið þurfi að koma frá bandarískum stjórnvöldum í Washington.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira