Erlent

Ró að færast yfir

Varnarmálaráðherra Frakklands segir að ró virðist vera að færast yfir Fílabeinsströndina eftir hörð átök um helgina. Ástandið í landinu er þó enn mjög eldfimt. Ráðherrann segir engin áform, að svo stöddu, að flytja burt franska ríkisborgara frá svæðinu. Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði í morgun að Fílabeinsströndin væri vinaþjóð Frakklands og hann hvatti til friðar í Vestur-Afríku ríkinu eftir róstur og ofbeldi gegn frönskum borgurum. Átökin blossuðu upp eftir að Frakkar eyðilögðu nánast allan flugher landsins í kjölfar morða á níu frönskum friðargæsluliðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×