Anna María leikur sinn 300. leik 13. október 2004 00:01
Anna María Sveinsdóttir, leikmaður kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta, spilar tímamótaleik í kvöld þegar hún verður fyrsta körfuboltakonan til þess að spila 300 deildarleiki í efstu deild. Keflavíkurliðið tekur þá á móti nýliðum Hauka á Sunnubrautinni í Keflavík en þar hefur heimavöllur Önnu Maríu verið allan hennar feril í efstu deild sem spannar nú 19 tímabil. Anna María lék sinn fyrsta leik gegn KR 6. október 1985 þegar Keflavíkurliðið vann eins stigs sigur í sínum fyrsta leik í efstu deild. Síðan þá hefur Keflavík leikið 343 leiki í efstu deild, Anna María hefur verið með í 299 þeirra og verið þátttakandi í öllum 22 stóru titlunum sem kvennalið félagsins hefur unnið. Anna María hefur alls unnið 36 titla með Keflavík á þessum 19 árum, 11 Íslandsmeistaratitla, 11 bikarmeistaratitla, 8 deildarmeistaratitla, 2 fyrirtækjabikara og Meistarakeppni KKÍ 4 sinnum. Þá hefur enginn leikmaður leikið fleiri landsleiki (60), skorað fleiri stig í efstu deild (4.720), verið oftar valinn leikmaður ársins (6) eða kosinn oftar í lið ársins (10) svo eitthvað sé nefnt af öllu sem Anna María hefur afrekað á körfuboltavellinum. Hún hefur verið toppleikmaður í toppliði allan þennan tíma sem sést vel á því að Anna María hefur skorað 15,8 stig að meðaltali í þeim 299 deildarleikjum sem eru að baki og Keflavíkurliðið hefur unnið 84% þeirra, 252 af 299. Anna María á að baki 65 leiki sem spilandi þjálfari en hún þjálfaði einnig Keflavíkurliðið 1997-99 og 2001-03. Undir hennar stjórn vann liðið tvo Íslandsmeistaratitla og einn bikarmeistaratitil. Nú er Anna María bara óbreyttur leikmaður, hún sækist ekki eftir fyrirliðastöðunni og nýtur þess aðeins að spila körfubolta en þeir sem þekkja til keppniskonunnar Önnu Maríu Sveinsdóttur segja að hún sé ekki hætt að vinna titla.
Íþróttir Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti Fleiri fréttir Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Bradley Beal til Clippers Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Bellingham í aðgerð á öxl og missir af næstu landsleikjum Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Ítalía í undanúrslit í fyrsta sinn síðan 1997 Þúsund hjólareiðakappar þeysa um hálendið um helgina Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona „Þetta var bara byrjunin“ Hetjudáðir gegn Íslandi tryggðu henni sæti í byrjunarliðinu í kvöld Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Liverpool reynir líka við Ekitike Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Sjáðu mörkin úr geggjuðum Blikasigri Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Aukinn áhugi á EM þrátt fyrir samkeppni við FIFA Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sjá meira