Liverpool reynir líka við Ekitike Valur Páll Eiríksson skrifar 16. júlí 2025 14:05 Líklegt þykir að Ekitike spili fótbolta annað hvort á Anfield eða St. James' Park á næstu leiktíð. Það veltur líklega á því hvernig Newcastle og Liverpool gengur að semja um Alexander Isak. Christof Koepsel/Getty Images Liverpool hefur sett sig í samband við þýska liðið Eintracht Frankfurt vegna mögulegra kaupa á Frakkanum Hugo Ekitike. Sá hefur verið í viðræðum við Newcastle United en Liverpool er einnig á eftir framherja þeirra svarthvítu.
Arne Slot, þjálfari Liverpool, er sagður hafa nýjan framherja efstan á lista yfir þarfir Liverpool fyrir komandi leiktíð en Darwin Nunez er ekki í náðinni hjá hollenska stjóranum. Þá fækkaði framherjum Liverpool við skyndilegt fráfall Diogo Jota eftir bílslys. Liverpool hefur áður verið orðað við Ekitike en Newcastle hefur lagt mikið í sölurnar til að semja við franska framherjann. Ekki hefur þó tekist að ná samkomulagi við Frankfurt um kaupverð. 75 milljón evra tilboði var hafnað í vikunni. Liverpool hefur sett sig í samband við Newcastle vegna Svíans Alexanders Isak og talið reiðubúið að reiða fram 120 milljónir punda fyrir besta leikmann Newcastle, sem er ekkert sérlega hrifið af hugmyndinni að selja Svíann. Liverpool hefur nú sett pressu á félagið úr annarri átt með því að troða sér inn í baráttuna um Ekitike. Skilaboð Liverpool til Newcastle séu í raun: Ef þið seljið okkur ekki Isak þá tökum við Ekitike einfaldlega undan nefinu á ykkur. Ekitike er 23 ára gamall og skoraði 22 mörk auk þess að leggja upp tólf í öllum keppnum með Frankfurt á síðustu leiktíð. Fátt bendir til þess að hann haldi kyrru fyrir í Þýskalandi þegar boltinn fer aftur að rúlla í haust.
Enski boltinn Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Sjá meira