Innlent

Aðgerðir gegn leikjanámskeiðum

Skipulögð starfsemi eins og leikjanámskeið á starfstíma kennara er verkfallsbrot að mati Kennarafélagsins. Búast má við aðgerðum, enda lítur félagið svo á að gengið sé inn á verksvið kennara. Dæmi eru um að fyrirtæki og stofnanir hafi skipulagt eða íhugi að koma upp gæslu fyrir börn starfsmanna meðan verkfall varir. Til dæmis eru fleiri en 80 börn starfsfólks KB-banka á leikjanámskeiði í Valsheimilinu, börn þeirra sem starfa í Landsbanknum stendur til boða leikjanámskið í KR-heimilinu og foreldrafélag Íslandsbanka og Sjóvár-Almennra hefur sent börn í heilsuskóla í Félagsheimili Þróttar. Þá hefur Eimskipafélagið tekið á leigu húsnæði fyrir börn starfsfólks og Orkuveitan mun vera að athuga hvort slíkri stafsemi verði komið á. Formaður Verkfallsstjórnunar Kennarafélagsins, Svava Björnsdóttir, segist ekki vita til að slík starfsemi hafi áður verið starfrækt í kennaraverkföllum. Enn sé óvíst til hvaða úrræða verður gripið ef talið er að með henni sé gengið inn á verksvið kennara. „Við komum ekki til með að storma neins staðar en við ætlum að nota daginn í dag til að skoða hvað sé að gerast; hverjir það séu sem ætli að bjóða upp á skipulagða starfsemi með börnum þar sem okkur finndist þá gengið inn verksvið kennara,“ segir Svava. Undir verksvið kennara fellur öll starfsemi þar sem fagmenntaðir aðilar vinna með börnum á skipulegan hátt, hvers konar fræðslustarfsemi og einnig leikjanámskeið líkt og nú eru í gangi víðsvegar. Svava segir barnagæslu það eina sem ekki flokkist undir verkfallsbrot, svo framarlega sem hún fari fram á skólatíma barnanna. Hægt er að hlusta á viðtal við Svövu með því að smella á hlekkinn hér að neðan.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×