Erlent

Yukos fær engan frest

Dómstólar í Rússlandi höfnuðu í gær kröfu olíufyrirtækisins Yukos um að innheimtu á skattskuldum fyrirtækisins yrði frestað á meðan engin niðurstaða væri í ýmsum dómsmálum tengdum málaferlunum. Yukos skuldar um 250 milljarða króna í skatta og gert er ráð fyrir að sá reikningur kunnið að hækka upp í allt að 700 milljarða. Forsvarsmenn Yukos halda því fram að ýmsar aðgerðir stjórnvalda í tengslum við innheimtuna séu ólöglegar. Sérstaklega veldur það vandræðum fyrir félagið að bankareikningar þess séu frystir og því sé gert ókleift að selja hluta eigna sinna til að afla tekna til endurgreiðslu skuldanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×