Tjón Charley um 70 milljarðar 14. ágúst 2004 00:01
Fellibylurinn Charley jafnaði hús við jörðu og reif tré upp með rótum þegar hann gekk yfir Flórída í gær. Það má segja að Charley hafi komið aftan að Flórídabúum því hann tók land miklu sunnar en við var búist. Hundruð þúsunda manna höfðu flúið heimili sín við Tampa-flóa en íbúar í Punta Gorda og Port Charlotte voru alls óviðbúnir þegar hann ruddist þar á land með bauki og bramli. Vindhraðinn mældist 233 kílómetrar á klukkustund sem er 64,7 metrar á sekúndu. Sem sagt, alvöru óveður. Charley jafnaði enda býsnin öll af húsum við jörðu og reif tré upp með rótum. Ekki eru enn öll kurl komin til grafar um tjónið en það er ekki undir sjötíu milljörðum króna. Ekki er vitað um nema einn mann sem fórst en allmargir eru slasaðir. Það þykir þó vel sloppið miðað við hve óveðrið var hrikalegt og það að Charley kom á land á allt öðrum stað en við var búist. Charley er nú kominn yfir Flórída og á leið út á Atlantshaf og er eitthvað farið að draga úr styrk hans.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira