Stórárás vofir yfir 11. ágúst 2004 00:01
Harðir bardagar stóðu yfir í írösku borginni Najaf í gær, sjöunda daginn í röð. Uppreisnarmenn sem eru hliðhollir sjíaprestinum Muqtada al-Sadr hafa barist af hörku við bandarískar og íraskar hersveitir. Bandaríkjamenn segja að lokauppgjörið sé í nánd. Í yfirlýsingu frá herforinga Bandaríkjamanna á svæðinu segir að undirbúningur sé hafinn fyrir lokauppgjörið en seinni partinn í gær var ljóst að einhverjar tafir yrðu á því að atlagan hæfist. "Það skiptir engu máli, þeir vita að við erum að koma," sagði herforinginn. Hins vegar var al-Sadr mjög vígreifur og hvatti stuðningsmenn sína til að halda baráttunni áfram þótt hann yrði handtekinn eða drepinn. Bandarískar hersveitir sóttu í gær að borginni yfir stóran kirkjugarð en liðsmenn al-Sadrs vörðust með sprengjuvörpum. Ekki var kunnugt um mannfall í liði Bandaríkjamanna. Hörðustu bardagarnir voru í kringum helga staði múslima í borginni. Heilbrigðisstarfsmenn í Najaf segja ástandið þar afar slæmt og það muni verða algjört hörmungarástand ef bardögum linnir ekki fljótlega. "Sjúkrabílar komast ekki til að sækja hina særðu og hjálparstarfsmenn komast ekki á sjúkrahúsin," sagði Falah al-Mahani, yfirmaður heilbrigðismála í Najaf. Ibrahim al-Jaafari, varaforseti í bráðabirgðastjórn Íraks, sagði í gær að Bandaríkjamenn ættu að draga lið sitt frá Najaf. "Aðeins íraskar hversveitir ættu að vera í Najaf. Þær ættu að tryggja öryggi borgarinnar og bjarga henni frá þessum hörmungum," sagði Jaafari. Bandaríkjamenn segja á hinn bóginn að þeir séu í Najaf að beiðni bráðabirgðastjórnarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Sjá meira