Erlent

Sauma fyrir munn sér

Afganskir flóttamenn í Indónesíu hafa saumað fyrir munn sér og hafið hungurverkfall til að þrýsta á um að þeim verði veitt hæli. Hópur um 40 flóttamanna hefur dvalist í úthverfi Jakarta um tveggja ára skeið en fulltrúar Sameinuðu þjóðanna höfnuðu því á dögunum að þeir yrðu skilgreindir formlega sem hælisleitendur og útilokuðu að þeir yrðu sendir til þriðja lands. Flóttamennirnir segja Sameinðu þjóðirnar hafi heitið þeim hæli í landi utan Indónesíu en síðan gengið á bak orða sinna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×