Erlent

Hryðjuverkaógn í Las Vegas

Yfirvöld í Las Vegas í Bandaríkjunum skýrðu almenningi ekki frá hugsanlegri hryðjuverkaógn í borginni samkvæmt skýrslu sem bandaríska fréttastofan Associated Press komst yfir eftir hryðjuverkin 11. september. Lögreglan í Detroit komst yfir myndbandsupptökur frá þremur grunuðum hryðjuverkamönnum sem sýndu myndir af ýmsum þekktum mannvirkjum í Las Vegas. Saksóknari í máli hinna grunuðu undraðist að yfirvöld í Las Vegas skyldu neita að verða við ósk Alríkislögreglunnar um að auka viðbúnað í borginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×