Erlent

Sprenging í kjarnorkuveri í Japan

Fjórir létust og sjö særðust í gufusprengingu í kjarnorkuveri í Mihama í Vestur-Japan í morgun. Mennirnir hlutu alvarleg brunasár undan hita gufunnar sem var yfir 250 stig á selsíus. Forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, ætlar að láta rannsaka ástæður sprengingarinnar en þetta er í fyrsta skipti sem slys verður í kjarorkuveri í Japan. Engin geislavirk efni láku út og öll hætta er liðin hjá. Myndin er af kjarnorkuverinu í Mihama.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×