Erlent

Ástralska barnið fundið

Áströlsk móðir er himinlifandi eftir að þriggja vikna dóttir hennar, sem var rænt frá henni fyrir utan verslunarmiðstöð í fyrrakvöld, er komin í leitirnar. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var greint frá því að par á þrítugsaldri hefði úðað piparúða í andlit móðurinnar, Anítu Ciancio, þar sem hún var að ganga frá matvörum í bíl í bílastæðageymslu verslunarmiðstöðvar í Melbourne í Ástralíu á laugardagskvöld. Parið rændi barninu, sem Anita hafði komið fyrir í bíl sínum, og stakk af á öðrum bíl. Grátklökk birtist Aníta í sjónvarpi í gær og bað um að barninu yrði skilað. Sjúkraliðar sem höfðu fengið nafnlausa ábendingu í gegnum síma fundu þriggja vikna stúlkuna í yfirgefnu húsi í norðurhluta borgarinnar í gær. Fagnaðarfundir urðu í framhaldi þegar móðir og barn voru sameinuð á ný fyrir utan barnaspítala. Afi stúlkunnar segir að ræningjarnir hafi ekki gert henni mein þótt þeir hafi af einhverjum ástæðum rakað hár af höfði hennar. Myndin er af parinu sem rændi barninu og er úr öryggismyndavél verslunarmiðstöðvarinnar. Hægt er að horfa á fréttina úr morgunsjónvarpi Stöðvar 2 með því að smella á hlekkinn hér að neðan. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×