Erlent

Bannað að brosa í vegabréfum

Þeim sem hyggjast sækja um vegabréf í Bretlandi er nú bannað að brosa svo það sjáist í tennurnar á vegabréfsmyndum. Stofnunin sem sér um útgáfu vegabréfanna segir að með þessu sé verið að fara eftir nýjum bandarískum stöðlum sem banna mönnum að brosa út að eyrum. Ástæðan er sú að bros getur villt fyrir öryggismyndavélum og landamæravörðum. Á næsta ári ætla Bretar að taka í gagnið nýja tegund vegabréfs en inni í vegabréfinu verður tölvukubbur sem hefur að geyma upplýsingar um andlitsdrætti eiganda bréfsins. Allt er þetta liður í baráttunni við hryðjuverk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×