Erlent

Réðist á börn vopnaður hnífi

Eitt barn lést og fimmtán slösuðust, þar af tvö alvarlega, þegar starfsmaður leikskóla réðst með hnífi að leikskólabörnum og kennurum þeirra. Þrír kennarar særðust í árásinni. Sá sem er grunaður um verknaðinn er rúmlega fimmtugur maður sem starfaði á leikskólanum um tveggja ára skeið. Hann dvaldi á geðsjúkrahúsi um fimm mánaða skeið árið 1999. Maðurinn réðst á leikskólabörn og kennara og skar þau með hnífi. Átta lögreglumenn voru sendir á vettvang og handtóku þeir manninn. "Ég sá börnin liggjandi á jörðinni. Það var blóð út um allt gólf," sagði maður á vettvangi sem hjálpaði við að koma fólki á sjúkrahús. Fréttamaður fréttastofunnar Xinhua sem var viðstaddur þegar komið var með særða á sjúkrahús sagði vera börnin löðrandi í blóði og skelfingu lostin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×