Erlent

Gripið til aðgerða gegn Súdan

Sameinuðu Þjóðirnar hafa hótað að grípa til aðgerða gegn Súdan eftir að súdönsk yfirvöld höfnuðu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna sem samþykkt var í gær. Í ályktuninni segir að gripið verði til aðgerða gegn Súdan afvopni stjórnvöld ekki vígamenn í Darfur-héraði á þrjátíu dögum. Ekki hefur verið ákveðið hvaða aðgerðir Sameinuðu Þjóðirnar ætla að grípa til. Bandaríkjastjórn hefur hvatt till þess að sett verði viðskiptabann á landið en fjölmargar þjóðir eru því mótfallnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×