Erlent

Dómstóll kannar stríðsglæpi

Alþjóðasakadómstóllinn í Haag hefur hafið rannsókn á meintum voðaverkum í norðurhluta Úganda, þar sem ríkistjórnin hefur barist við uppreisnarmenn í átján ár. Þetta er önnur formleg rannsókn Alþjóðasakadómstólsins, en í næsta mánuði hefst rannsókn á meintum stríðsglæpum í Kongó. Þó rannsóknin beinist að báðum stríðandi aðilum í Úganda fagna stjórnvöld henni og segja hana verða til þess að þeir sem hafa gerst sekir um voðaverk fái makleg málagjöld. Mannréttindasamtök saka uppreisnarmenn meðal annars um að nema börn á brott og þjálfa þau sem skæruliða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×