Erlent

Samkynhneigt hjónaband ógilt

Fyrsta hjónaband samkynhneigðra einstaklinga í Frakklandi var ógilt í borginni Bordeaux í morgun. Stjórnvöld höfðu þá þegar lýst því yfir að gifting Stephanes Chapins og Bertrands Charpentiers væri ógild og ráku í kjölfarið borgarstjóra í úthverfi Bordeaux-borgar sem gaf mennina saman. Úrskurður dómstóla er áfall fyrir stjórnarandstöðuna sem hefur barist fyrir því að hjónabönd samkynhneigðra verði leyfð í Frakklandi. Ógifta parið ætlar að áfrýja dómnum og fara með málið til Evrópudómstólsins í Strassborg, verði dóminum ekki snúið.  Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×