Gífurlegt eignatjón og mannfall 14. ágúst 2004 00:01
Öflugasti hvirfilbylurinn til að ríða yfir Flórída kostaði fimmtán manns hið minnsta lífið og olli gífurlegu eignatjóni sem skildi mörg þúsund íbúa eftir heimilislausa. "Ég heyrði naglana rifna úr þakinu," sagði Anne Correia sem hafðist við í skáp í íbúð sinni í tvo tíma meðan hvirfilbylurinn gekk yfir. "Veggirnir skulfu rosalega, fram og aftur, fram og aftur. Þetta var ótrúleg og ógnvænleg upplifun," sagði hún. Tvær milljónir heimila og fyrirtækja misstu allt rafmagn vegna skemmda sem veðurofsinn olli. Eftir að hvirfilbylurinn gekk aftur út á haf gekk hann um skeið yfir Suður-Karólínu. Þar höfðu 180.000 íbúar og ferðamenn verið fluttir á brott í varúðarskyni. "Það er allt farið," sagði Dan Strong þegar hann sneri heim til sín á hjólhýsasvæði sem hafði gjöreyðilagst í veðurofsanum. Hann leitaði persónulegra muna, fata og ljósmynda í rústum heimilis síns. Jeb Bush ríkisstjóri heimsótti hamfarasvæðin í gær og sagði að það sem Flórídabúar hefðu óttast mest hefði orðið að veruleika. Hann líkti hvirfilbylnum við annan hvirfilbyl, Andrew sem gekk yfir suðurhluta Flórída árið 1992 og kostaði 26 manns lífið. "Þetta er Andrew á nýjan leik. Við teljum að margir hafi látið lífið," sagði hann. George W. Bush, Bandaríkjaforseti og bróðir ríkisstjórans, skoðar hamfarasvæðin í dag. Þrjú sjúkrahús urðu fyrir skemmdum. Eitt þeirra skemmdist svo mikið að flytja varð alla sjúklinga á burt. Til þess voru notaðir 200 sjúkrabílar. "Við verðum að koma sjúklingunum héðan. Staðurinn er ekki lengur öruggur," sagði Peggy Greene hjúkrunarforstjóri.
Erlent Fréttir Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Fleiri fréttir Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Sjá meira