Morgunkornið lækkar 30. desember 2004 00:01
Bandarískt morgunkorn sem keypt er til landsins fyrir dollara hefur lækkað í verði um 16% í sumum tilvikum. Könnun neytendasamtakanna sýnir að allar verslanir hafa lækkað verð á morgunkorni sé það borið saman við verð í byrjun ársins. Dollarinn stendur lágt um þessar mundir og þessar upplýsingar benda til þess að íslenskir neytendur njóti þess. Neytendasamtökin gerðu athugasemd við það í febrúar á þessu ári að verðið á morgunkorni átta mánuði hafði ekki endurspeglað gengisþróunina. Nú er sagan önnur. Könnun sem gerð var í fyrradag leiddi í ljós að í Hagkaupum, Bónus og Nóatúni hafði verðið lækkað um sextán prósent að meðaltali. Þessar verslanir höfðu hins vegar allar hækkað verðið á tímabilinu júní 2003 til febrúar 2004. Lækkunin er því minni ef skoðað er átján mánaða tímabil. Minnst lækkun varð í verlsunum 10-11 (3% að meðaltali), Spar (5% að meðaltali) 11-11 (5% að meðallagi) og Europris (sex prósent að meðaltali), en geta verður þess að þessar verslanir höfðu allar lækkað verð á morgunkorni á tímabilinu júní 2003 til febrúar 2004 fyrir utan Eurospris, sem stóð í stað. Sú verslun sem mest hefur lækkað verðið á morgunkorni frá því í júní 2003 er hins vegar Fjarðarkaup í Hafnarfirði eða um 15%. Neytendasamtökin telja allar forsendur fyrir þessum lækkunum en að erfitt sé að meta hvort verslanir gætu lækkað verð á þessum vörum enn meira. Dollarinn var hæstur í nóvember 2001 eða um 110 krónur en er í dag skráður í 61 krónu. hann hefur því lækkað um 45 prósent. Telja neytendasamtökin sjálfsagt að þessi lækkun skili sér út í verðlagið.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira