5 milljónir allt of lág upphæð 30. desember 2004 00:01
Vinstri grænir segja fimm milljónir, sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita til hjálparstarfsins á hamfarasvæðunum, allt of litla upphæð, miðað við að þetta séu einhverjar mestu hörmungar sögunnar. Þeir skora á stjórnvöld að veita minnst þrjú hundruð milljónum króna til hjálparstarfsins. Vinstri hreyfingin grænt framboð telur einboðið að Íslendingar leggi með myndarlegum hætti sitt af mörkum til hjálpastarfs og síðan uppbyggingar á flóðasvæðunum í Suðaustur-Asíu. Flokkurinn segir Íslendinga þekkja af eigin raun þær fórnir sem sambúð við óblíð náttúruöfl geti kostað. Þingflokkurinn hvetur til þverpólitískrar samstöðu um að nú þegar verði ákveðin aukafjárveiting upp á að minnsta kosti 300 milljónir króna, sem renni til hjálparstarfs og uppbyggingar á svæðunum. Fulltrúum Vinstri grænna í fjárlaganefnd og utanríkismálanefnd hefur verið falið að taka málið upp á þeim vettvangi og telur eðlilegt að Alþingi sjálft fjalli um og afgreiði mál af þessari stærðargráðu. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, segir að með tilliti til þess að hærri fjárhæðum hafi verið eytt í önnur verkefni, sé rétt að senda nú skilaboð og taka myndarlega þátt í fjármögnun uppbyggingarstarfs. Hann telur eðlilegt að Alþingi sjálft komi að málinu og þverpólitísk samstaða ætti að nást um það. Steingrímur segir þær 5 milljónir sem hið opinbera hefur lýst yfir að lagðar verði í verkefnið allt of lága upphæð, enda sé það tæpast eðlilegt að fjárhæðin sem ríkið leggi til sé ekki nema brot af því sem safnist í söfnunum.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira