Bankaráð klofið 30. desember 2004 00:01
Bankaráð Íslandsbanka er klofið eftir að bankastjóri bankans rak aðstoðarbankastjórann í gær. Minnihluti ráðsins er ósáttur og segir það bankaráðs að taka slíkar ákvarðanir og að kalla eigi það til fundar áður en slíkir menn séu reknir, ekki eftirá. Formaður bankaráðs heldur því fram að einhugur sé í bankaráði á bak við bankastjórann. Bankaráð Íslandsbanka kom saman til fundar í morgun í kjölfar þess að Bjarni Ármannsson, bankastjóri rak Jón Þórisson, aðstoðarbankastjóra í gær vegna eins og Bjarni segir það málefnalegs ágreinings um það hvernig best sé að reka bankann. Bjarni segir að einhverjir séu ósáttir við ákvörðunina, en allir virði það að hann hafi ákvörðunarvald til þess að taka slíka ákvörðun. Jón Þórisson sagði í samtali við fréttastofu í dag að samskipti hans og Bjarna Ármannssonar hefðu tekið stakkaskiptum eftir að hann léði máls á því í fjölmiðlum í haust að Íslandsbanki og Landsbanki yrðu sameinaðir. Bjarni segist ekki vilja ræða um ágreiningsmálin í fjölmiðlum, þar sem það sé bankanum ekki til góðs. Jón heldur því sömuleiðis fram að þessi brottrekstur hafi verið löngu ákveðinn. Það segir Bjarni rangt. Jón sagði líka í samtali við fréttastofu að andað hefði köldu í samskiptum þeirra tveggja um nokkurt skeið. Bjarni segir ekki rétt að fara út í slíkar málalengingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira