Sharon og Arafat fara halloka 19. ágúst 2004 00:01
Ariel Sharon og Jassir Arafat virðast báðir standa höllum fæti eftir pólitísk átök við eigin bandamenn undanfarna daga. Stjórnarslit og nýjar kosningar virðast óumflýjanlegar í Ísrael og palestínska þingið frestaði í dag fundi í mótmælaskyni við Arafat. Ariel Sharon segist gefa lítið fyrir þvermóðsku flokksbræðra sinna, sem höfnuðu hugmyndum um myndun samsteypustjórnar með Verkamannaflokknum í gær. Hann kveðst eftir sem áður ætla að reyna myndun stjórnar og að tryggja brotthvarf Ísraelsmanna frá Gasa-ströndinni en þær hugmyndir hafa staðið í harðlínumönnum innan Likud-flokks Sharons. En þó að Sharon sé kokhraustur er óvíst að fyrirætlanir hans nái fram að ganga, því í ljósi lítils stuðnings innan Likud-flokksins ákváðu leiðtogar Verkamannaflokksins síðdegis að slíta viðræðum um hugsanlega samsteypustjórn. Simon Perez hvatti síðdegis til þess að þingkosningar yrðu boðaðar en Sharon líst ekkert á það. Því virðist sem hagur Sharons sé heldur bágur þessa stundina og völd hans virðast fara þverrandi. Kollegi hans í röðum Palestínumanna, Jassir Arafat, er nú í svipaðri stöðu. Í gær viðurkenndi hann spillingu innan stjórnkerfisins og að ýmis mistök hefðu verið gerð í stjórnartíð sinni en vildi í dag ekki skrifa undir umbótaáætlun sem þingið hafði lagt til. Í kjölfarið ákváðu þingmenn að fresta fundum þingsins í mótmælaskyni. Pólitískur máttur Arafats virðist raunar fara þverrandi, eins og Sharons. Ýmsir stjórnmálaskýrendur hafa haldið því fram að Sharon og Arafat væru ljón á vegi raunverulegs friðar fyrir botni Miðjarðarhafs og í ljósi þeirra ummæla er fylgst með framvindu mála með mikilli athygli.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira