Jesús var fyrsti demókratinn 19. ágúst 2004 00:01 "
Hafi einhvern tíma verið til vinstrimaður sem hugsaði með hjartanu var það Jesús Kristur. Ég held að trésmiðurinn frá Galíleu hafi verið fyrsti demókratinn," sagði James C. Moore á ráðstefnu miðju- og vinstrisinnaðra kristinna manna þar sem þeir ræddu stjórnmál og trúmál. Moore, sem hefur skrifað bók um forsetaferil George W. Bush, sló á létta strengi í ræðu sinni en ljóst var að mörgum ræðumönnum var mikið niðri fyrir. Margir þeirra lýstu áhyggjum af því að hægrimenn virtust næstum allsráðandi í trúarlegri umræðu í Bandaríkjunum nú þegar hálfur þriðji mánuður er til forsetakosninga. "Það kann að koma mörgum á óvart að til er mjög trúað fólk sem sækir kirkju reglulega sem ætlar ekki að kjósa Bush," sagði séra Tom Heger, prestur í Texas. John D. Moyers, fræðimaður hjá Center for American Progress, lýsti sig andvígan siðaboðskap manna á borð við prestana áhrifamiklu Jerry Falwell og Pat Robertson, sem hann sagði vilja "telja okkur trú um að siðferði snúist aðeins um afstöðu okkar til fóstureyðingar og hvernig við komum fram við samkynhneigða. Ég held að það sé einfaldlega rangt". Margir á ráðstefnunni gagnrýndu að kristnir einstaklingar á hægri væng stjórnmálanna einblíndu á fóstureyðingar og hjónabönd samkynhneigðra meðan hungur og jafnvel stríðið í Írak féllu í skuggann. Samkvæmt skoðanakönnun og kosningarannsóknum sem hafa verið gerðar eru þeir sem fara í kirkju í hverri viku mun líklegri til að kjósa repúblikana en demókrata. Þeir sem fara sjaldnar í kirkju eða aðhyllast engin trúarbrögð eru mun líklegri til að kjósa demókrata. Þetta endurspeglast nokkuð í forsetaefnum flokkanna. Bush hefur gert mikið úr trú sinni og því að hann hafi frelsast. Demókratinn John Kerry talar mun síður um trú sína. Guðfræðiprófessorinn Michael Jinkins sagði Jesú geta komið öllum á óvart með því hvernig hann myndi kjósa. Þannig hefði Jesús ekki verið jafn bundinn af trúarbókstafnum og gagnrýnendur hans voru á sínum tíma.
Erlent Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira