77 létust á sólarhring 20. ágúst 2004 00:01
77 manns hið minnsta hafa farist í hörðum árásum á skotmörk í Najaf í Írak undanfarinn sólarhring. Harðlínuklerkurinn Múktada al-Sadr er þar í skotlínu írakskra og bandarískra sveita. Þó að árásirnar á Najaf í nótt hafi verið mjög harðar, virðast þær aðeins hafa verið sýnishorn, ætlað til að hrista upp í harðlínuklerknum Múktada al-Sadr og skelfa fylgismenn hans. Orrustuþotur vörpuðu sprengjum og látlaus skothríð dundi á þeim hluta borgarinnar, þar sem Mehdi-hersveitir al-Sadrs halda til. Íbúar flýðu unnvörpum eða földu sig í kjöllurum. Þrýstingurinn hefur borið nokkurn árangur. Fulltrúar al-Sadrs vilja nú að erindrekar æðsta klerks Íraks, Æjatolla Ali al-Sistani, taki við stjórn Imam Ali moskunnar í Najaf, þar sem al-Sadr hefur haldið til. Það þýddi að allir þeir, sem koma vildu inn í moskuna og garð hennar, yrðu að skilja vopn sín eftir fyrir utan. Hugsanlega mætti þannig koma því við að moskan, sem er mikilvæg í íslömskum sið, sleppi komi til lokabardagans sem stjórnvöld hafa hótað ef al-Sadr gefst ekki upp. Engin viðbrögð hafa enn sem komið er borist við umleitan manna al-Sadrs, sem neitar eftir sem áður að biðja Mehdi-skæruliðasveitir sínar að leggja niður vopn. Fréttaskýrendur segja þó ólíklegt að ríkisstjórn Íraks sé áfjáð að semja við al-Sadr í ljósi þess að hann gekkst inn á skilmála stjórnvalda fyrir tveimur dögum, og sveik þá sólarhring síðar. Gert er ráð fyrir að nú eftir föstudagsbæn, megi vænta tíðinda. Annars vegar geti lokahrinan í árásinni á al-Sadr hafist, og að sama skapi er óttast að til mótmæla komi víða um landi, og að það verði til að draga enn frekar úr vinsældum og mætti ríkisstjórnar Iyads Allawis, forsætisráðherra.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Sjá meira