Nöfn Íslendinganna ekki gefin upp 29. desember 2004 00:01
Íslendingur á Pattaya í Taílandi undrast að stjórnvöld sem leita Íslendinga í landinu hafi ekki spurst fyrir um ferðir fólksins meðal þeirra rúmlega eitt hundrað Íslendinga sem þar séu. Ekki hefur verið haft upp á fimm Íslendingum í Taílandi eftir flóðbylguna í sunnanverðir Asíu auk fimm sem talið er að séu á Balí. "Við hér bíðum eftir því að fá nafnalista eða myndir til að átta okkur á því hvort við könnumst við fólkið," segir Þorfinnur Kristjánsson á Pattaya. Pétur Ásgeirsson, forsvarsmaður neyðarvaktar utanríkisráðuneytisins, segir sannarlega hafa verið leitað til Íslendinga. Haft hafi verið samband við fólk sem talið hafi verið líklegast til að þekkja til. Innan utanríkisráðuneytisins hafi verið metið svo að litlar líkur væri á að fólkið væri í hættu. Meiri hagsmunir lægju því í að hlífa fólkinu fyrir að nöfnum þeirra og myndum yrði dreift um samfélagið en að hafa upp á því með þeim hætti. Kjartan Borg, ræðismaður Taílands á Íslandi, segir myndir til af þeim af þeim Íslendingum sem saknað sé í Taílandi. Hann hallist að því að í lagi sé með fólkið. Hins vegar gefi fólk ekki alltaf upp réttan dvalarstað. Nefnir hann sem dæmi að átta Íslendingar sem séu á Patong á Phuket-eyju hafi sagst ætla að dvelja í Bangkok. Pétur segir að vegna dæma sem þessara sé fólksins leitað. Ómar Valdimarsson sem vinnur á vegum Rauða krossins í Indónesíu er í jólafríi á Balí. Hann grenslast fyrir um fimm manna fjölskyldu þar, íslenska konu, sænskan mann hennar og þrjú stálpuð börn þeirra sem ekki hafi náðst í. Þau séu óhult frá flóðinu hafi þau ekki ferðast frá Balí. Auk fjölskyldunnar hafa tvö pör á Pattaya, annað með barn, ekki komið í leitirnar. Pétur segir að fregnir hafi fengist af öðru parinu fyrir nokkrum dögum. Einmitt í gegnum Íslendinga á Pattaya. Þær hafi ekki fengist staðfestar.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira